Kunnugir þekkja þarna auðvitað Silfurtorg á Ísafirði.
Á myndinni má sjá húsið sem enn er merkt Björnsbúð (en hýsir nú Bæjarins besta – þegar ég vann þar var blaðið annars staðar), fataverslunina JOV, Sjóvá, Gamla bakaríið, Klæðakot (sem er í helmingseigu systur minnar) og Hótel Ísafjörð (sem var líka á þessum stað þegar ég var næturvörður – en verður fleiri hæðir í framtíðinni). Sjónarhorn myndarinnar er eiginlega úr Bókhlöðunni/Eymundsson.
Ég lét svo gera fyrir mig plaköt af bæði kápunni og myndinni af torginu einni og sér – fyrir skrifstofuna og útgáfuhófið. Og langar að láta á það reyna hvort Bókhlaðan vill ekki hirða eitt þeirra – enda þetta eiginlega útsýnið út um gluggann þeirra. Og hafa í glugganum til að auglýsa bókina.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli